„Alexander Lúkasjenkó“: Munur á milli breytinga

Efni eytt Efni bætt við
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 30:
'''Alexander Grígorjevítsj Lúkasjenkó''' ('''Алякса́ндр Рыго́равіч Лукашэ́нка''' á kyrillísku letri; f. 30. ágúst 1954) er fyrsti og núverandi forseti [[Hvíta-Rússland]]s. Hann hefur gegnt embættinu frá því að það var stofnað þann 20. júlí 1994. Lúkasjenkó er kennari að mennt og hafði verið virkur í ungliðahreyfingu hvítrússneska kommúnistaflokksins. Áður en hann hóf virka þátttöku í stjórnmálum var Lúkasjenkó aðstoðarframkvæmdastjóri samyrkjubús, framkvæmdastjóri ríkisbús<ref>{{Vefheimild|titill=Meta forsetann meira en sjálfstæðið|url=http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=1929319|útgefandi=[[Morgunblaðið]]|ár=1999|mánuður=7. mars|árskoðað=2018|mánuðurskoðað=16. október|höfundur=Jón Ólafsson}}</ref> og hafði gegnt þjónustu í sovéska landamæraverðinum og sovéska hernum. Hann var eini hvítrússneski þingmaðurinn sem kaus á móti sjálfstæði landsins frá [[Sovétríkin|Sovétríkjunum]] árið 1991. Á tíunda áratugnum hélt Lúkasjenkó á lofti hugmyndum um endursameiningu Hvíta-Rússlands og Rússlands<ref>{{Vefheimild|titill=Þjóð í greipum fortíðar|url=https://www.mbl.is/greinasafn/grein/715886/|útgefandi=[[mbl.is]]|ár=2003|mánuður=22. febrúar|árskoðað=2018|mánuðurskoðað=16. október}}</ref> en í seinni tíð hefur hann lagt áherslu á mikilvægi fullveldis Hvíta-Rússlands, ekki síst vegna versnandi sambands hans við ríkisstjórn Rússlands.
 
Lúkasjenkó var mótfallinn því að innleiða efnahagslega frjálslyndisvæðingu í vestrænum stíl eftir fall kommúnismans og undir stjórn hans eru flestir mikilvægustu iðnaðir Hvíta-Rússlands því enn ríkisreknir. Hvíta-Rússland hefur forðast [[einkavæðing]]una sem var framkvæmd í stórum stíl í flestum öðrum Sovétlýðveldum eftir hrun Sovétríkjanna. Ríkisstjórn Lúkasjenkós hefur einnig viðhaldið mestöllu myndmáli og útliti Sovéttímans, sérstaklega í herskrúðgöngum á [[Sigurdagurinn í Evrópu|evrópska sigurdeginum]]. Vestrænir andstæðingar Lúkasjenkós kalla hann gjarnan „síðasta [[einræðisherra]] Evrópu“.<ref>{{Vefheimild|titill=Gengið til kosninga í síðasta einræðisríki Evrópu|url=http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=5735809|útgefandi=[[blaðið]]|ár=2006|mánuður=16. mars|árskoðað=2018|mánuðurskoðað=16. október}}</ref> FráAndstæðingar árinuLúkasjenkós 2006fullyrða hafa [[Evrópusambandið]]ekkert ogríki [[Bandaríkin]]í öðruEvrópu hverjuhafi beittjafnmarga Hvítaleyniþjónustu-Rússland efnahagsþvingunumog fyrirlögreglumenn mannréttindabrotá ríkisstjórnarinnarsínum snærum miðað við höfðatölu og Hvíta-Rússland.<ref name=alexievitsj/> Lúkasjenkó hefur réttlætt stjórnarhætti sína með því móti að þeir hafi bjargað Hvíta-Rússlandi frá glundroða og komið í veg fyrir að fátækt og [[fáveldi]] festi þar rætur líkt og í öðrum fyrrum Sovétlýðveldum.
 
Frá árinu 2006 hafa [[Evrópusambandið]] og [[Bandaríkin]] öðru hverju beitt Hvíta-Rússland efnahagsþvingunum fyrir mannréttindabrot ríkisstjórnarinnar.<ref name=alexievitsj>{{Vefheimild|url=http://www.ruv.is/frett/hvitrussar-kjosa-thaulsaetinn-forseta|titill=Hvítrússar kjósa þaulsætinn forseta|útgefandi=RÚV|ár=2015|mánuður=11. október|árskoðað=2018|mánuðurskoðað=31. október}}</ref> Samband Hvíta-Rússlands við vesturveldin hefur hins vegar batnað að nokkru leyti frá því að Lúkasjenkó gagnrýndi hernám og innlimun Rússa á [[Krímskagi|Krímskaga]] árið 2014 og hélt friðarráðstefnu milli Rússa og Úkraínumanna til að freista þess að binda endi á átökin í Úkraínu.<ref name=alexievitsj/>
 
==Tilvísanir==