Vikan mín með Marilyn
My Week with Marilyn er væntanleg bresk kvikmynd sem leikstýrð er af Simon Curtis og skrifuð af Adrian Hodges. Michelle Williams, Kenneth Branagh, Eddie Remayne, Dougray Scott, Emma Watson og Judi Dench fara með aðalhlutverkin í myndinni sem er byggð á tveimur bókum eftir Colin Clark. Myndin fjallar um gerð kvikmyndarinnar The Prince and the Showgirl þar sem Marilyn Monroe og Laurence Olivier fóru með aðalhlutverkin og vikuna sem hún eyddi með Colin Clark í Bretlandi eftir að eiginmaður hennar Arthur Miller fór úr landi. Forsýning myndarinnar átti sér stað á kvikmyndahátíðinni í New York þann 9. október 2011 og verður frumsýnd í Bandaríkjunum þann 4. nóvember 2011 og 30. desember á Íslandi.
My Week with Marilyn | |
---|---|
Leikstjóri | Simon Curtis |
Handritshöfundur | Adrian Hodges |
Framleiðandi | Harvey Weinstein David Parfitt |
Leikarar | Michelle Williams Emma Watson |
Frumsýning | 4. nóvember 2011 30. desember 2011 |
Lengd | 101 mín |
Tungumál | enska |
Aldurstakmark | Bönnuð innan 12 |
Söguþráður
Sumarið 1953 fylgist hinn 23. ára gamli Colin Clark með og skrásetur spennuna sem ríkir á milli Laurence Olivier og Marilyn Monroe á meðan að framleiðslu myndarinnar The Prince and the Showgirl stendur á.
Leikendur
- Michelle Williams sem Marilyn Monroe
- Kenneth Branagh sem Sir Laurence Olivier
- Eddie Redmayne sem Colin Clark
- Judi Dench sem Dame Sybil Thorndike
- Emma Watson sem Lucy
- Dougray Scott sem Arthur Miller
- Dominic Cooper sem Milton H. Greene
- Julia Ormond sem Vivien Leigh
- Derek Jacobi sem Sir Owen Morshead
- Zoë Wanamaker sem Paula Strasberg
- Richard Clifford sem Richard Wattis