Hanna Birna Kristjánsdóttir
Hanna Birna Kristjánsdóttir (f. 12. október 1966) er fyrrum innanríkisráðherra, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og borgarstjóri í Reykjavík.
Hanna Birna Kristjánsdóttir (HBK) | |||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Borgarstjóri í Reykjavík | |||||||||
Í embætti 2008–2010 | |||||||||
Varaformaður Sjálfstæðisflokksins | |||||||||
Í embætti 2013–2016 | |||||||||
Innanríkisráðherra | |||||||||
Í embætti 2013–2014 | |||||||||
Alþingismaður | |||||||||
| |||||||||
Persónulegar upplýsingar | |||||||||
Fædd | 12. október 1966 Hafnarfjörður | ||||||||
Æviágrip á vef Alþingis |
Æska og einkalíf
breytaHanna Birna er fædd og uppalin í Hafnarfirði. Foreldrar hennar eru Kristján Ármannsson járnsmiður (f. 1944) og Aðalheiður Jóhanna Björnsdóttir móttökuritari (f. 1945). Maki Hönnu Birnu er Viljálmur Jens Árnason heimspekingur og eiga þau tvær dætur.[1]
Menntun og starfsferill
breytaHanna Birna lauk verslunarskólaprófi frá Verslunarskóla Íslands árið 1984 og stúdentsprófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík 1986. Hún lauk prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands 1991 og M.Sc. prófi í alþjóðlegum og evrópskum stjórnmálum frá Háskólanum í Edinborg 1993.
Hanna Birna var starfsmaður Öryggismálanefndar 1990-1991, deildarsérfræðingur í menntamálaráðuneytinu 1994-1995 og framkvæmdastjóri þingflokks sjálfstæðismanna 1995-1999. Á árunum 1999-2006 var Hanna Birna aðstoðarframkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins.[1]
Hanna Birna var borgarfulltrúi í Reykjavík á árunum 2002-2013 og oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn 2008-2013. Hún var forseti borgarstjórnar á árunum 2006-2008.
Hanna Birna var kjörin borgarstjóri 21. ágúst 2008 og tók við embættinu af Ólafi Friðriki Magnússyni. Hún lét af embætti að loknum kosningunum 2010 þegar Besti flokkurinn og Samfylkingin mynduðu meirihluta og Jón Gnarr varð borgarstjóri.
Hanna Birna var kjörin forseti borgarstjórnar í júní 2010 með 15 samhljóða atkvæðum. Með því var tryggt sögulegt samstarf minnihlutans við meirihluta borgarstjórnar. Samstarfið stóð í tíu mánuði, en Hanna Birna sagði af sér forsetaembættinu í apríl 2011 vegna málefnaágreinings við meirihlutann.
Árið 2011 bauð hún sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins gegn Bjarna Benediktssyni en tapaði. Hún gaf kost á sér í fyrsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir Alþingiskosningarnar 2013 og sigraði með miklum yfirburðum og leiddi lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður og varð 1. þingmaður kjördæmsins að kosningum loknum. Á landsfundi Sjálfstæðisflokksins 2013 var hún kjörin varaformaður með 95% atkvæða.[2]
Hanna Birna tók við embætti innanríkisráðherra 23. maí 2013 en sagði af sér 21. nóvember 2014 eftir hið svokallaða lekamál.
Hanna Birna ákvað að gefa ekki kost á sér í Alþingiskosningunum 2016.[3]
Eftir að Hanna Birna sagði skilið við stjórnmálin hefur hún m.a. verið ráðgjafi á aðalskrifstofu UN Women í New York,[4] verið formaður framkvæmdastjórnar Women Political Leaders (WPL) og verið í forsvari fyrir alþjóðlega ráðstefnu kvenleiðtoga sem haldin hefur verið í Hörpu.
Tilvísanir
breyta- ↑ 1,0 1,1 Alþingi, Æviágrip - Hanna Birna Kristjánsdóttir (skoðað 7. desember 2020)
- ↑ Ruv.is, „Ferill Hönnu Birnu í stjórnmálum“ (skoðað 7. desember 2020)
- ↑ 13 þingmenn hætta - 6 fyrrverandi ráðherrar Rúv, skoðað 14. september, 2016.
- ↑ Kjarninn.is, „Verkefni sem Hanna Birna vinnur að hjá UN Women styrkt af íslenskum stjórnvöldum“ (skoðað 7. desember 2020)
Tengt efni
breyta
Fyrirrennari: Ögmundur Jónasson |
|
Eftirmaður: Ólöf Nordal | |||
Fyrirrennari: Ólöf Nordal |
|
Eftirmaður: Ólöf Nordal | |||
Fyrirrennari: Ólafur F. Magnússon |
|
Eftirmaður: Jón Gnarr |