„Alþingiskosningar 1995“: Munur á milli breytinga
LaaknorBot (spjall | framlög) m robot Bæti við: pl:Wybory parlamentarne na Islandii w 1995 roku |
m robot Bæti við: it:Elezioni parlamentari islandesi del 1995 |
||
Lína 174: | Lína 174: | ||
[[de:Isländische Parlamentswahl 1995]] |
[[de:Isländische Parlamentswahl 1995]] |
||
[[en:Icelandic parliamentary election, 1995]] |
[[en:Icelandic parliamentary election, 1995]] |
||
[[it:Elezioni parlamentari islandesi del 1995]] |
|||
[[no:Alltingsvalget 1995]] |
[[no:Alltingsvalget 1995]] |
||
[[pl:Wybory parlamentarne na Islandii w 1995 roku]] |
[[pl:Wybory parlamentarne na Islandii w 1995 roku]] |
Útgáfa síðunnar 13. febrúar 2009 kl. 11:56
Alþingiskosningar 1995 voru kosningar til Alþingis Íslendinga sem fóru fram 8. apríl 1995. Á kjörskrá voru 191.973 manns. Kosningaþátttaka var 87,4%. Í þessum kosningum bauð fram nýtt stjórnmálaafl, Þjóðvaki, klofningsframboð úr Alþýðuflokknum undir stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og Ágústs Guðmundssonar, fékk fjóra þingmenn en Alþýðuflokkurinn missti þrjá. Þrír þessara Þjóðvakaþingmanna gengu síðar á kjörtímabilinu í „þingflokk jafnaðarmanna“ ásamt þingmönnum Alþýðuflokksins. Kvennalistinn fékk ekki nema þrjár þingkonur - missti tvær frá fyrra kjörtímabili.
Stjórnarmyndun
Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðuflokkurinn fengu samanlagt nægilegan fjölda þingsæta til þess að Viðeyjarstjórnin hefði haldið velli, en aðeins með eins manns mun. Eftir kosningarnar fór Davíð Oddsson með stjórnarmyndunarumboð fyrir Sjálfstæðisflokkinn og myndaði ríkisstjórn með Framsóknarflokknum undir forystu Halldórs Ásgrímssonar. Nýja ríkisstjórnin hafði þannig 40 þingmanna meirihluta.
Sameining á vinstri vængnum
Eftir kosningarnar fóru viðræður um sameiningu flokkanna fjögurra á vinstri vængnum í eina Samfylkingu á fullt skrið og lauk með því að þessir flokkar gerðu með sér kosningabandalag í kosningunum 1999. Í sveitarstjórnarkosningunum árið 1994 höfðu þrír þessara flokka, auk Framsóknarflokksins, gert með sér kosningabandalag í Reykjavík og haft sigur undir merkjum Reykjavíkurlistans.
Flokkur | Atkvæði | % | Þingmenn | |
Alþýðuflokkurinn | 18.846 | 11,4 | 7 | |
Framsóknarflokkurinn | 38.485 | 23,3 | 15 | |
Sjálfstæðisflokkurinn | 61.183 | 37,1 | 25 | |
Alþýðubandalagið (og óháðir) | 23.597 | 14,3 | 9 | |
Kvennalistinn | 8.031 | 4,9 | 3 | |
Þjóðvaki | 11.806 | 7,2 | 4 | |
Aðrir og utan flokka | 3.095 | 1,9 | 0 | |
Alls | 152.722 | 100 | 63 |
Forseti Alþingis var kjörinn Ólafur G. Einarsson, Sjálfstæðisflokki
Fyrir: Alþingiskosningar 1991 |
Alþingiskosningar | Eftir: Alþingiskosningar 1999 |