Fara í innihald

YouTube

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 22. október 2013 kl. 08:58 eftir 194.144.233.158 (spjall) Útgáfa frá 22. október 2013 kl. 08:58 eftir 194.144.233.158 (spjall) (→‎Höfundarréttur)
Merki myndbandavefsins YouTube

YouTube er myndbandavefsíða sem var opnuð 15. febrúar 2005. Þar geta notendur hlaðið inn, horft á og deilt myndböndum. YouTube var stofnað af þeim Chad Hurley, Steve Chen og Jawed Karim sem áður störfuðu fyrir PayPal.

YouTube notar Adobe Flash-tækni til þess að dreifa myndböndum til áhorfenda. Hugmyndin á bakvið vefsíðuna er sú að hver sem er geti komið sínu eigin efni á netið án þess að greiða fyrir það. Á YouTube má finna fjölmargar gerðir myndbanda, til að mynda brot úr sjónvarpsþáttum, tónlistarmyndbönd auk efnis frá hinum almenna notanda svo sem kennslumyndbönd ýmiskonar og Myndblogg. Vefurinn gerir hverjum sem er kleift að horfa á þessi myndskeið sér að kostnaðarlausu.

Tímaritið Time útnefndi YouTube nýjung ársins 2006. Í nóvember það ár keypti Google YouTube fyrir hlutabréfaeign í Google að verðmæti 1,65 milljarða Bandaríkjadollara.

Bestu Channel-in

123studiosIS, ArnorTheBanana, PewDiePie, Smosh, GuidoJavierSkate25, BBBenedikt o.fl

Tenglar

Heimild