Alþingiskosningar 1995
Útlit
Alþingiskosningar 1995 voru kosningar til Alþingis Íslendinga sem fóru fram 8. apríl 1995. Á kjörskrá voru 191.973 manns. Kosningaþátttaka var 87,4%.
Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðuflokkurinn fengu samanlagt nægilegan fjölda þingsæta til þess að Viðeyjarstjórnin hefði haldið velli, en aðeins með eins manns mun. Eftir kosningarnar fór Davíð Oddsson með stjórnarmyndunarumboð fyrir Sjálfstæðisflokkinn og myndaði ríkisstjórn með Framsóknarflokknum undir forystu Halldórs Ásgrímssonar. Nýja ríkisstjórnin hafði þannig 40 þingmanna meirihluta.
Flokkur | Atkvæði | % | Þingmenn | |
Alþýðuflokkurinn | 18.846 | 11,4 | 7 | |
Framsóknarflokkurinn | 38.485 | 23,3 | 15 | |
Sjálfstæðisflokkurinn | 61.183 | 37,1 | 25 | |
Alþýðubandalagið (og óháðir) | 23.597 | 14,3 | 9 | |
Kvennalistinn | 8.031 | 4,9 | 3 | |
Þjóðvaki | 11.806 | 7,2 | 4 | |
Aðrir og utan flokka | 3.095 | 1,9 | 0 | |
Alls | 152.722 | 100 | 63 |
Forseti Alþingis var kjörinn Ólafur G. Einarsson, Sjálfstæðisflokki
Fyrir: Alþingiskosningar 1991 |
Alþingiskosningar | Eftir: Alþingiskosningar 1999 |