Smári (rafeindafræði)
Útlit
Smári eða transistor er hálfleiðaratæki sem er aðallega notaður til að magna eða skipta rafboðum. Smárar eru grunneiningar í rökrásum tölva og flestra annarra nútímarafeindatækja. Smárar geta verið stakir en oft koma þeir fyrir frá tugum og upp í marga milljarða saman á sömu flögu. Smárar komu fyrst fram á sjónarsviðið á 3. áratug 20. aldar en ekki var farið að framleiða þá fyrr en eftir Síðari heimsstyrjöld til notkunar í útvarpsviðtækjum.
Smárar skiptast í tveir megin gerðir, sviðshrifssmára (e. FET, field effect transistor) og tvískeitta smára (e. BJT, bipolar junction transistor).