Fara í innihald

Krakatá

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 29. desember 2018 kl. 09:03 eftir Berserkur (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. desember 2018 kl. 09:03 eftir Berserkur (spjall | framlög) (Anak Krakatá.)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Krakatá gýs.
Flóðbylgja í samhengi við gosið 1883

Krakatá (indónesíska: Krakatau) er eldfjallaeyja í Sundasundi, milli Jövu og Súmötru í Indónesíu. Eldfjallið á eyjunni heitir einnig Krakatá og það hefur gosið oft og kröftuglega. Gosið 1883 var eitt mesta stórgos á sögulegum tíma í heiminum.

Við eldstöðina gaus eyjan Anak Krakatá árið 2018 með þeim afleiðingum að hluti hennar hrundi. Afleiðingin var flóðbylgja sem olli dauða yfir 400 manns.