Fara í innihald

Apófyllít

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Apófyllít

Apófyllít er flokkur steinda sem tilheyrir Zeólítum.

Apófyllít myndar ferstrenda kristala með afsneiddum hornum. Algengasta stærðin er um 1-2 cm en þó hafa fundist miklu stærri. Finnst einnig sem flögur. Hefur glergljáa og skelplötugljáa. Glært, hvítt, oft grænleitt, gulleit eða rauðleitt. Myndar staka kristala eða þyrpingar.

  • Efnasamsetning: KFCa4Si8O20 • 8H2O
  • Kristalgerð: tetragónal
  • Harka: 4½-5
  • Eðlisþyngd: 2,33-2,37
  • Kleyfni: mjög góð á einn veg

Útbreiðsla

[breyta | breyta frumkóða]

Algengt með zeólítum í ólivínbasalti. Finnst í öllum zeólítabeltunum.

  • Kristján Sæmundsson og Einar Gunnlaugsson (1999) Íslenska steinabókin. ISBN 9979-3-1856-2