Fáni Bangladess
Útlit
Fáni Bangladess er grænn með rauðum hringfleti sem er ekki nákvæmlega miðsettur heldur eilítið nálægar stangarhliðinni. Rauða sólin táknar það blóð sem var úthelt til að ná sjálfstæði í Bangladess-stríðinu. Græni liturinn er hefðbundinn íslamskur litur.
Upprunalega var fáninn með gult kort yfir landið inni í rauðu skífunni en var fljótlega tekinn burt, að hluta til af praktískum ástæðum, þar sem það var einfaldara að gera hann án þess.
Hlutföll fánans eru 3:5. Hann tók formlega gildi 17. janúar 1972.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Fáni Bangladess.