Fallbyssa
Fallbyssa (fallstykki, stykki eða kanóna) er mjög stór byssa, oftast á fæti, sem í eru notuð þung skot. Í upphafi voru fallbyssur oftast steyptar í heilu lagi, en seinna var farið að lóða þær saman úr minni einingum. Elstu fallbyssur eru frá 12 - 13. öld, en finna má lýsingar á fallbyssum frá 3. öld f.Kr. Þær fallbyssur voru frumstæðar og ekki knúnar með byssupúðri. Nútímafallbyssur er stundum nefndar stórskotabyssur.
Saga
[breyta | breyta frumkóða]Fyrstu fallbyssurnar
[breyta | breyta frumkóða]Fallbyssur eru byssur sem nota byssupúður eða annað sprengiefni. Fallbyssur voru fundar upp í Kína. Seinna breiddust fallbyssur til Evrópu. Orðið „cannon“ á ensku kemur úr latínu. Í Kína var fallbyssan þannig að rör var fyllt með byssupúðri og fest framan á spjót og notað sem nokkurs konar eldvarpa. Þessi uppfinning var notuð í Kína árið 1132 í stríði milli Chen Gui og De‘an. Fallbyssur voru fyrst notaðar í Evrópu á 13. öld.
Annað
[breyta | breyta frumkóða]Klumba var orð sem haft var um fallbyssu með vissu lagi og skrúfbyssur eru tegund af litlum fallbyssum sem eru smíðaðar í tvennu lagi og skrúfaðar saman þegar á þurfti að halda. Byssur þessar voru m.a. notaðar í fjallahernaði þar sem erfitt gat verið að athafna sig með venjulegar fallbyssur. Fallbyssur sem dregnar voru á kerrum voru nefndar kerrubyssur.
Tengt efni
[breyta | breyta frumkóða]- Digra Berta (þýska: Dicke Bertha)
- Línubyssa
- Sprengjuvarpa
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Fallbyssa til Skagastrandar; grein af Skagaströnd.is Geymt 2 október 2015 í Wayback Machine