Giuseppe Ungaretti
Útlit
Giuseppe Ungaretti (10. febrúar 1888 - 2. júní 1970) var ítalskt ljóðskáld. Ásamt Umberto Saba, Salvatore Quasimodo og Eugenio Montale, var hann eitt helsta ljóðskáld Ítalíu á 20. öld. Ungaretti er frægur fyrir stutt og hnitmiðuð ljóð sín, og ósjaldan er eitt þeirra, þ.e. Mattina, dregið fram sem æðsta djásnið í æviverki hans. Ljóðið er mjög stutt og er þannig:
- Mattina
- M'illumino
- d'immenso
Tengill
[breyta | breyta frumkóða]- Upptendraður af hinu óendanlega; grein um Ungaretti í Lesbók Morgunblaðsins 1989
- Massimo Colella, "Per una semantica della luce ungarettiana. Il caso del 'Porto Sepolto'", in "Rivista di Letteratura Italiana", XXXV, 3, 2017, pp. 141-149.