Henry Morgan
Henry Morgan (Hari Morgan á velsku) (um 1635 – 25. ágúst 1688) var velskur fríbýttari sem varð frægur sem sjóræningjaforingi í Karíbahafinu. Hann rændi spænskar borgir og skip á árunum frá 1667 til 1671 og nýtti sér átök milli Englands og Spánar á þeim tíma en frægustu herfarir hans voru gegn Panama þessi sömu ár. Með síðustu ránsferð sinni braut hann gegn friðarsamkomulagi Englands og Spánar en tókst að sýna fram á að hann hefði ekki haft vitneskju um það. Hann var þá aðlaður og gerður að landstjóra á Jamaíka. 1683 missti hann stöðu sína í landstjórninni og heilsu hans var þá tekið að hraka, hugsanlega vegna berkla. Hann var einnig alræmdur fyrir drykkjuskap sem hefur flýtt fyrir heilsutapi.
Vinsæl rommtegund, Captain Morgan, heitir í höfuðið á honum.