Kommúnistaflokkur Kína
Kommúnistaflokkur Kína 中国共产党 Zhōngguó Gòngchǎndǎng | |
---|---|
Aðalritari | Xi Jinping |
Stofnár | 23. júlí 1921 |
Höfuðstöðvar | Zhongnanhai, Beijing |
Félagatal | 91.914.000 (2020) |
Stjórnmálaleg hugmyndafræði |
Kommúnismi, marx-lenínismi, sósíalismi með kínverskum einkennum, kínversk þjóðernishyggja |
Einkennislitur | Rauður |
Sæti á Alþýðuþinginu | |
Sæti í fastanefnd Alþýðuþingsins | |
Vefsíða | cpc.people.com.cn |
Kommúnistaflokkur Kína er eini stjórnarflokkur Alþýðulýðveldisins Kína en auk hans eru átta stjórnmálaflokkar starfandi í landinu. Flokkurinn var stofnaður árið 1921, aðallega af Chen Duxiu og Li Dazhao. Kommúnistaflokkurinn vann sigur í kínversku borgarastyrjöldinni (1927-1949) og stofnaði Alþýðulýðveldið Kína 1. október 1949. Þá var flokkurinn undir stjórn Maó Zedong sem var leiðtogi flokksins þar til hann lést árið 1976.
Flokkurinn er í grunninn marx-lenínískur flokkur byggður á hugmyndum Vladimírs Leníns sem fela í sér opnar umræður um stefnumál en síðan einingu um samþykkta stefnu. Hugmyndafræði flokksins og ríkisins í dag byggir jafnframt á „sósíalisma með kínverskum einkennum“, sem felur í sér blöndu á kenningum Leníns, Marx og Engels, Konfúsíusar og á kapítalisma.[1]
Æðsta ráð flokksins er þjóðþingið sem kemur saman á fimm ára fresti. Þess á milli fer miðnefnd flokksins með völdin. Þar sem miðnefndin kemur aðeins saman einu sinni á ári eru völdin í reynd í höndum stjórnmálaráðs og fastanefndar þess. Leiðtogi flokksins er aðalritari hans auk þess að vera forseti herráðsins og forseti ríkisins (sem er táknræn staða). Núverandi leiðtogi flokksins er Xi Jinping.
Kommúnistaflokkurinn telur til sín um 91 milljónir meðlima og er því næstfjölmennasti stjórnmálaflokkur í heimi á eftir Bharatiya Janata-flokknum á Indlandi.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Helga Kristín Kolbeins (8. júlí 2009). „Hvernig er stjórnarfarið í Kína?“. Vísindavefurinn. Sótt 10. apríl 2024.