draumur
Útlit
Íslenska
Nafnorð
draumur (karlkyn); sterk beyging
- [1] Draumar eru sýnir, hljóð eða önnur skynjun sem fólk upplifir í svefni, sem mynda oftast samfellda frásögn um eitthvað tiltekið efni.
- [2] eitthvað indælt; löngun
- Orðsifjafræði
- frumgermanska
- Framburður
- IPA: [d̥rœyːmʏr̥]
- Yfirheiti
- [1] svefn
- Afleiddar merkingar
- Sjá einnig, samanber
- Dæmi
- [1] „Það var draumur þó ég ímyndaði mér ekki annað en ég vekti.“ (Snerpa.is : Vakandi manns draumur)
- [1] „Þetta tvennt varð til þess að risinn sofandi vaknaði upp við vondan draum og kom þá upp í huga mér orðatiltækið að oft veltir lítil þúfa þungu hlassi.“ (Læknablaðið.is : Breytingar á vaktafyrirkomulagi unglækna)
- [1] „Að hlaupa í draumi er oft túlkað sem þörf fyrir að flýja frá einhverju í lífi sínu en flug getur aftur á móti snúist um að fá yfirsýn.“ (Lifandi vísindi : Af hverju snúa sömu draumar aftur?)
- [2] „Draumur minn er að búa í einhverju sólríku landi, helst nálægt vínekru, stunda kaffihúsin í gríð og erg og skrifa pistla fyrir blöð og útvörp.“ (internettilvitnun)
Þýðingar
[breyta]
- Tilvísun
„Draumur“ er grein sem finna má á Wikipediu.
Icelandic Online Dictionary and Readings „draumur “