Fara í innihald

Eista

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 21. nóvember 2010 kl. 21:56 eftir Almabot (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. nóvember 2010 kl. 21:56 eftir Almabot (spjall | framlög) (robot Bæti við: be:Яечкі)

Eistu (fræðiheiti: testis, ft. testes) er kynkirtill karldýra. Hann er egglaga og er í kviðarholi á fósturskeiði og fyrsta hluta æviskeiðs en ratar svo niður um sérstaka rennu í pung.

Eistað er samsettur pípukirtill og um hann hlykkjast sæðispípurnar. Í þeim verða sáðfrumurnar til og færast svo smám saman út í sérstakt geymsluhólf, aukaeistað. Liggur það ofan á eistanu. Þar myndast hluti sáðvökvans en einnig eyðast þar gamlar sáðfrumur skyldi aftöppun ekki verða með eðlilegum hætti.

  Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Snið:Tengill ÚG