Eva Dögg Davíðsdóttir
Útlit
Eva Dögg Davíðsdóttir (EDD) | |||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Alþingismaður | |||||||
| |||||||
Persónulegar upplýsingar | |||||||
Fædd | 4. desember 1988 | ||||||
Stjórnmálaflokkur | Vinstrihreyfingin – grænt framboð | ||||||
Menntun | Mannfræðingur meistaranám í breytingastjórnun | ||||||
Háskóli | Háskóli Íslands Háskólinn í Stafangri(no; en) | ||||||
Æviágrip á vef Alþingis |
Eva Dögg Davíðsdóttir (fædd 4. desember 1988) er alþingismaður sem situr á þingi fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð í Reykjavíkurkjördæmi norður. Eftir alþingiskosningarnar 2021 var hún fyrsti varamaður vinstri grænna í kjördæminu og kom nokkrum sinnum inn á þing sem slíkur en með afsögn Katrínar Jakobsdóttur vegna forsetaframboðs hennar í apríl 2024 kom Eva inn á þing.
Eva er með BA-próf í mannfræði frá Háskóla Íslands, diplómu í alþjóðasamskiptum frá VID Specialized University og meistaragráðu í breytingastjórnun frá Háskólanum í Stafangri. Hún hefur stundað doktorsnám í umhverfis- og þróunarfræðum við Landbúnaðarháskólann að Ási í Noregi.