Hirðstjórar á Íslandi
Hirðstjórar konungs á Íslandi frá 1270 til 1683: Framan af, það er að segja frá 13. öld og fram á miðja 15. öld, er oft mjög torvelt að greina hverjir voru eiginlegir hirðstjórar og hverjir umboðsmennn hirðstjóra eða fógetar, svo og hvort menn höfðu hirðstjórn yfir allt landið eða aðeins helming þess eða einstaka fjórðunga. Ketill Þorláksson er fyrsti maðurinn sem kallaður er hirðstjóri í konungsbréfi og á honum hefst Hirðstjóraannáll Jóns Halldórssonar í Hítardal. Á undan honum höfðu ýmsir menn verið umboðsmenn konungs á Íslandi en óvíst er hvaða embættistitla þeir báru þótt hefð sé fyrir því að telja Hrafn Oddsson og Orm Ormsson fyrstu hirðstjórana.
Á 16. og 17. öld var hirðstjóri (höfuðsmaður) venjulega sjóliðsforingi eða aðmíráll í danska flotanum án fastrar búsetu á Íslandi. Í fjarveru höfuðsmannsins var hlutverkinu sinnt af fógeta.
- Listi er ekki tæmandi.
- Hrafn Oddsson (norðan og vestan 1270, allt landið 1279-)
- Ormur Ormsson (sunnan og austan 1270)
- Sveinn Þórisson
- Ketill Þorláksson (1320(?) - eftir 1335)
- Eiríkur Sveinbjarnarson (norðan og vestan (1323-1341)
- Bótólfur Andrésson (1341-1343)
- Grímur Þorsteinsson (1343-1345)
- Holti Þorgrímsson (1346-1348)
- Ólafur Bjarnarson (sunnan og austan 1350-1354)
- Ívar Vigfússon hólmur (1354-1357)
- Árni Þórðarson (sunnan og austan með Andrési) (1357-1360)
- Andrés Gíslason (sunnan og austan með Árna) (1357-1360)
- Jón Guttormsson skráveifa (norðan og vestan með Þorsteini) (1357-1360)
- Þorsteinn Eyjólfsson (norðan og vestan með Jóni) (1357-1360)
- Smiður Andrésson (1361-1362)
- Þorsteinn Eyjólfsson sunnan og austan (1364-1365)
- Ólafur Pétursson (1364-1365)
- Ormur Snorrason (norðan og vestan 1366-1368)
- Andrés Gíslason (1366-1367 ?)
- Þorgautur Jónsson (1370-1372)
- Andrés Sveinsson (1372 - 1387)
- Þorsteinn Eyjólfsson (1387 ?)
- Eiríkur Guðmundsson (1387-1388)
- Þorsteinn Eyjólfsson (1388-1389)
- Vigfús Ívarsson (1389-1413)
- Björn Einarsson Jórsalafari (umboðsmaður Árna) (1413-1415)
- Árni Ólafsson Skálholtsbiskup (1415-?)
- Arnfinnur Þorsteinsson (1419; líklega í umboði Árna biskups)
- Helgi Styrsson (1420-?)
- Þorsteinn Ólafsson (1420-1423)
- Hannes Pálsson (1423-1425)
- Balthazar van Damme (1423-1426)
- Ólafur Nikulásson (sunnan og austan ?-1439)
- Þorsteinn Ólafsson (norðan og vestan 1427-1430)
- Loftur Guttormsson ([norðan og vestan [1427-1432)
- Ormur Loftsson (norðan og vestan 1432 ? -1446)
- Einar Þorleifsson (norðan og vestan 1446-1450)
- Torfi Arason (1450-1457)
- Björn Þorleifsson (1457-1467)
- Hinrik Kepken (1470-?)
- Hinrik Daníel (147?-1480?) (líklega aðeins norðan og vestan)
- Diðrik Píning (líklega aðeins sunnan og austan 1478-1483)
- Þorleifur Björnsson (1481-1486, þó líklega aðeins norðan og vestan 1481-1483)
- Diðrik Píning (1487?-1490)
- Ambrosius Illiquad (Illiqvod) (1491-1493)
- Pétur Trúels Tómasson (1494-1496)
- Pétur Kláusson (1497-?)
- Benedikt Hersten (Histen) (1499-1502)
- Kai von Ahlefeldt (Anevelde) (1503-?)
- Vigfús Erlendsson (fyrir 1507-1509)
- Hans Rantzau (1510-1514)
- Søren Andersen Norby (1514-1517)
- Týli Pétursson (1517-1520)
- Hannes Eggertsson (1521-1524)
- Jóhann Pétursson (1524-1529)
- Dietrich van Bramstedt (1529-1534)
- Biskuparnir Ögmundur Pálsson og Jón Arason (1534-1536)
- Claus van der Marwitzen (1536-1541)
- Christoffer Huitfeldt (1541-1542)
- Otte Stigsen Hvide (1542-1547)
- Laurentius Mule (1547-1551)
- Otte Stigsen Hvide (1551)
- Eggert Hannesson (1551-1553)
- Poul Huitfeldt (1553-1554)
- Knud Stensen (1554-1560)
- Poul Stigsen Hvide (1560-1566)
- Henrik Krag (1566-1569)
- Christoffer Henningsen Walkendorff (1569-1571)
- Johann Bockholt (1570-1587)
- Peder Thomassen (1587-1588)
- Lauritz Tygesen Kruse (1588-1591)
- Henrik Krag (1591-1595)
- Brostrup Giedde (1595-1597)
- Johann Bockholt (1597-1602)