4. febrúar
dagsetning
Jan – Febrúar – Mar | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | ||||
4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 |
11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 |
18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | ||
2024 Allir dagar |
4. febrúar er 35. dagur ársins samkvæmt gregoríska tímatalinu. 330 dagar (331 á hlaupári) eru eftir af árinu.
Atburðir
breyta- 1222 - Menn Guðmundar biskups Arasonar komu til Hóla að næturlagi og drápu Tuma Sighvatsson.
- 1431 - Jón Vilhjálmsson Craxton Hólabiskup vígði átta nunnur til klausturlífs á Reynistað. Ein þeirra ól barn nokkrum mánuðum síðar og um næstu áramót fæddi önnur nunna í klaustrinu barn.
- 1454 - Þrettán ára stríðið: Leyndarráð prússneska sambandsins sendi stórmeistara Þýsku riddaranna formlega tilkynningu um óhlýðni.
- 1493 - Solveig Hrafnsdóttir gekk í klaustur á Reynistað. Hún átti síðar eftir að vera abbadís þar í meira en fjóra áratugi.
- 1508 - Maxímilían 1. var kjörinn keisari hins Heilaga rómverska ríkis. Hann lét það vera sitt fyrsta verk að ráðast gegn Feneyjum.
- 1555 - John Rogers var brenndur á báli í Englandi fyrir villutrú, fyrstur mótmælenda eftir valdatöku Maríu drottningar.
- 1620 - Furstinn af Transylvaníu, Bethlen Gábor, samdi um frið við Ferdinand 2.
- 1699 - 350 streltsíverðir voru teknir af lífi í Moskvu.
- 1792 - George Washington var kosinn 1. forseti Bandaríkjanna.
- 1862 - Bacardi, eitt af stærstu vínframleiðslufyrirtækjum heims, var stofnað í Santiago de Cuba á austurhluta Kúbu.
- 1898 - Holdsveikt fólk á Íslandi var sett í sóttkví með lögum.
- 1938 - Teiknimynd Walt Disney, Mjallhvít og dvergarnir sjö, fyrsta teiknimyndin í fullri lengd, var frumsýnd í Bandaríkjunum.
- 1947 - Ný ríkisstjórn tók við völdum á Íslandi. Forsætisráðherra var Stefán Jóhann Stefánsson.
- 1961 - Portúgal hóf nýlendustríð sitt í Angóla.
- 1961 - Verslunarbankinn var stofnaður upp úr Verslunarsparisjóðnum.
- 1968 - Fárviðri gekk yfir Vestfirði. Heiðrún II frá Bolungarvík fórst með sex mönnum. Breski togarinn Ross Cleveland fórst með nítján mönnum en einn komst af. Breski togarinn Notts County strandaði við Snæfjallaströnd og bjargaði varðskipið Óðinn allri áhöfninni, átján manns.
- 1974 - Patriciu Hearst, nítján ára barnabarni útgefandans William Randolph Hearst, var rænt.
- 1975 - Yfir 2000 létust í jarðskjálfta í Haicheng í Kína.
- 1976 - Vetrarólympíuleikarnir 1976 hófust í Innsbruck í Austurríki.
- 1976 - Um 22.000 manns létust af völdum jarðskjálfta í Gvatemala og Hondúras og ein milljón missti heimili sín.
- 1977 - Fleetwood Mac gaf út plötuna Rumours.
- 1980 - Abolhassan Banisadr varð forseti Írans.
- 1981 - Gro Harlem Brundtland varð forsætisráðherra Noregs í fyrsta sinn.
- 1982 - Vísindamenn á vegum NASA uppgötvuðu fjögur ný tungl á braut um Satúrnus.
- 1983 - C. Dauguet tók fyrstu ljósmyndina af HIV-vírusnum.
- 1984 - Hrafninn flýgur, kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar, var frumsýnd.
- 1985 - Landamærin milli Spánar og Gíbraltar voru opnuð í fyrsta sinn frá 1969.
- 1987 - Hans Holmér sagði sig frá rannsókninni á morðinu á Olof Palme vegna almennrar óánægju með störf hans.
- 1991 - Ísland varð fyrsta ríkið til að viðurkenna sjálfstæði Litháen.
- 1992 - Framkvæmdanefnd um einkavæðingu var skipuð af fulltrúum þriggja íslenskra ráðuneyta.
- 1992 - Hugo Chávez leiddi misheppnaða valdaránstilraun í Venesúela.
- 1993 - Rosemarie Köhn varð fyrsti kvenkyns biskup Noregs.
- 1996 - 322 fórust og þúsundir misstu heimili sín þegar jarðskjálfti reið yfir Lijiang í Kína.
- 1997 - 73 létust þegar tvær ísraelskar herþyrlur á leið til Líbanon rákust saman.
- 1997 - Forseti Serbíu, Slobodan Milošević, viðurkenndi ósigur í kosningunum í nóvember árið áður.
- 1997 - Íslenska bifreiðaskoðunarfyrirtækið Frumherji var stofnað.
- 1998 - 2.323 létust þegar jarðskjálfti reið yfir Takhar-hérað í Afganistan.
- 1998 - Kráareigandinn Dragan Joksović var skotinn til bana í Stokkhólmi sem leiddi til stríðs milli gengja í veitingahúsageiranum í Svíþjóð.
- 1999 - Amadou Diallo var skotinn til bana af lögreglumönnum í New York.
- 2000 - Þýski hermdarverkamaðurinn Klaus-Peter Sabotta var dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir skemmdarverk og fjárkúgun.
- 2003 - Serbía og Svartfjallaland hætti að nota nafnið Júgóslavía opinberlega.
- 2004 - Netsamfélagið Facebook var stofnað af Mark Zuckerberg.
- 2007 - Þjóðverjar unnu heimsmeistaratitilinn í handbolta á heimavelli.
- 2008 - Íran vígði sína fyrstu geimrannsóknarstöð og skaut eldflaug út í geim.
- 2009 - Tveir kjarnorkukafbátar, Le Triomphant (Frakkland) og HMS Vanguard (Bretland), rákust á á miklu dýpi í Atlantshafi. Áreksturinn varð á litlum hraða og engar skemmdir urðu, en málið vakti athygli á möguleikum kafbáta sem búnir eru ratsjárvarnarbúnaði til að komast hjá árekstrum.
- 2012 - Yfir 200 létust í árás Sýrlandshers á búðir uppreisnarmanna í Homs.
- 2013 - Erfðafræðirannsóknir á líkamsleifum sem fundust í Englandi 2012 virtust staðfesta að þær væru úr Ríkharði 3.
- 2014 - Óeirðir brutust út í Bosníu og Hersegóvínu.
- 2015 - 43 létust þegar TransAsia Airways flug 235 hrapaði í Keelung-á við Taípei.
- 2021 - Joe Biden Bandaríkjaforseti tilkynnti að hætt yrði að útvega Sádi-Arabíu vopn til að nota í borgarastyrjöldinni í Jemen.
- 2022 - Vetrarólympíuleikarnir 2022 voru settir í Beijing í Kína.
Fædd
breyta- 1688 - Pierre de Marivaux, franskt leikskáld (d. 1763).
- 1740 - Carl Michael Bellman, sænskt skáld og tónskáld (d. 1795).
- 1812 - Þóra Gunnarsdóttir, íslensk prestfrú (d. 1882).
- 1842 - Georg Brandes, danskur fræðimaður (d. 1927).
- 1862 - Hjalmar Hammarskjöld, forsætisráðherra Svíþjóðar (d. 1953).
- 1871 - Friedrich Ebert, þýskur stjórnmálamaður (d. 1925).
- 1897 - Ludwig Erhard, þýskur stjórnmálamaður (d. 1977).
- 1902 - Charles Lindbergh, bandarískur flugmaður (d. 1974).
- 1906 - Clyde Tombaugh, bandarískur stjörnufræðingur (d. 1997).
- 1906 - Dietrich Bonhoeffer, þýskur guðfræðingur (d. 1945).
- 1910 - Petrína K. Jakobsson, bæjarfulltrúi í Reykjavík (d. 1991).
- 1913 - Rosa Parks, bandarísk baráttukona (d. 2005).
- 1918 - Ellen Marie Magerøy, norskur listfræðingur (d. 2009).
- 1921 - Betty Friedan, bandarískur rithöfundur og femínisti (d. 2006).
- 1923 - Conrad Bain, kanadísk-bandarískur leikari (d. 2013).
- 1931 - Isabel Martínez de Perón, forseti Argentínu.
- 1936 - David Brenner, bandarískur grínisti.
- 1946 - Davíð Janis, íslenskur körfuknattleiksmaður.
- 1947 - Dan Quayle, varaforseti Bandaríkjanna 1989-1993.
- 1948 - Vincent Furnier, betur þekktur sem Alice Cooper, bandarískur tónlistarmaður.
- 1958 - Kazuaki Nagasawa, japanskur knattspyrnumaður.
- 1964 - Noodles, bandarískur gítarleikari (The Offspring).
- 1964 - Oleh Protasov, úkraínskur knattspyrnumaður.
- 1965 - John van Loen, hollenskur knattspyrnumaður.
- 1967 - Þorsteinn Guðmundsson, íslenskur skemmtikraftur.
- 1970 - Gabrielle Anwar, bresk leikkona.
- 1971 - Eric Garcetti.
- 1973 - Oscar De La Hoya, mexíkóskur hnefaleikamaður.
- 1974 - Shahab Hosseini, íranskur útvarpsmaður.
- 1975 - Natalie Imbruglia, áströlsk tónlistarkona og leikkona.
- 1976 - Kristjón Kormákur Guðjónsson, íslenskur rithöfundur.
- 1977 - Gavin DeGraw, bandarískur söngvari.
- 1990 - Karen Knútsdóttir, íslensk handknattleikskona.
Dáin
breyta- 211 - Septimius Severus, Rómarkeisari (f. 146).
- 708 - Sisinníus páfi.
- 839 - Egbert af Wessex Englandskonungur.
- 1161 - Ingi krypplingur, Noregskonungur.
- 1222 - Tumi Sighvatsson, íslenskur höfðingi (f. 1198).
- 1505 - Jóhanna af Valois, fyrsta kona Loðvíks 12. Frakkakonungs (f. 1464).
- 1719 - Jón Steinsson Bergmann læknir, sonur Steins biskup (f. um 1696).
- 1894 - Adolphe Sax, belgískur hljóðfærasmiður, fann upp saxófóninn (f. 1814).
- 1928 - Hendrik Antoon Lorentz, hollenskur eðlisfræðingur og Nóbelsverðlaunahafi (f. 1853).
- 1955 - Ásta Kristín Árnadóttir, íslenskur málari (f. 1883).
- 1983 - Karen Carpenter, bandarísk söngkona (f. 1950).
- 1987 - Liberace, bandarískur skemmtikraftur (f. 1919).
- 1987 - Carl Rogers, bandarískur sálfræðingur (f. 1902).
- 1995 - Patricia Highsmith, bandarískur rithöfundur (f. 1921).
- 2006 - Betty Friedan, bandarískur rithöfundur (f. 1921).